Life is in Every Breath
Karfan
Árgangur 1982
27.02.2008 19:13:34 / thea

Próf, Próf, Próf!!!

Jæja litlu dýrin mín, þá kemur loksins eitthvað lífmark frá mér og vil ég taka það fram að þetta blogg er tileinkað ástarenglinum mínum henni Ingu Ósk svo að hún hafi eitthvað að lesa í vinnunni hehe:haha:
Úff, það er orðið svo langt síðan ég sagði eitthvað af viti hérna á síðunni að ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Ennfremur þá hef ég aldrei átt jafn lítið líf og seinasta eina og hálfa mánuðinn og því ansi lítið fréttnæmt sem hefur á daga mína drifið upp á síðkastið. Kannski best að byrja á því að ég skellti mér loksins á djammið fyrir tveimur vikum með skvísunum mínum og hafði ég þá akkúrat ekki gert neitt í heilar fimm vikur nema að læra. Hitti varla fólk á þessum tíma heldur og verður því að viðurkennast að þetta djamm var akkúrat það sem skvísan þurfti á að halda. Alla vega þá fór ég á tjúttið bæði föstudag og laugardag, í afmæli til Sollu sætu á föstudeginum en svo í svaka stelpupartý hjá Dagný á laugardeginum. Takk fyrir mig Dagný mín, þetta var frábært teiti:p Það var æðislegt að hitta allar sæti stelpurnar mínar, enda var maður farinn að sakna þeirra heldur mikið eftir að vera búinn að lifa sem einsetukona í meira en mánuð hehe:haha:
Gerði heldur lítið á síðustu helgi, en kíkti þó aðeins í könnu með gúrkunni minni á föstudeginum og var það mjög fínt og ekkert heljarinnar sull. Bara svona fáguð drykkja í gangi og aðeins farið í bæinn til að sýna sig og sjá aðra. Laugardagskvöldið var heldur dapurt og verð ég að viðurkenna að ég fann meðaumkunina frá vestfjarðarmærunum mínum alla leið frá Ísafirði þar sem þær vorkenndu mínum svo innilega að sitja all by my lonesome að horfa á eurovision hehe. Það var nú heldur aumingjalegt að þurfa að horfa á þetta einn og yfirgefinn, en þökk sé skvísunum mínum fyrir vestan þá var maður í beinu símasambandi alla keppnina og tók þátt í gleðinni með þeim þegar lagið okkar vann. En vá, hvað ég var hamingjusöm yfir að Friðrik og Regína hafi unnið þetta! Er ekki frá því að það hafi meira að segja fallið nokkur gleðitár (ég veit að þetta er hálf aumkunnarvert hehe, sjáið þið mig ekki í anda alveg að tapa mér ein og yfirgefin yfir eurovision hahaha) og nú verður sko gaman að horfa á Eurovision í maí:p
Allt að ofanverðu er nú kannski ekki alveg í frásögur færandi, en því miður þá er þetta líf mitt þessa dagana. Ég hef bara eiginlega ekkert gert síðan í janúar nema að sitja yfir bókunum og lesa fyrir alla þessa æðislegu fimm áfanga sem ég er í og mun vera svona tvöföld Hell Week framundan þar sem það eru próf á rúmlega tveggja daga fresti til 11. mars. En hver sagði að það væri gaman að vera í háskóla? Ef einhver hefur logið því að ykkur þá hefur sá hinn sami greinilega allan tímann í heiminum, býr heima hjá pabba og mömmu, þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að þrífa, elda, þvo þvott eða neitt því um líkt, því þetta er sko meira en að segja það að koma þessu öllu inn í dagskrána hjá sér og reyna að gera það með bros á vör. En það koma þó tímar sem maður getur sleppt af sér beislinu og djammað allhressilega, en því fylgir þó yfirleitt samviskubit því manni finnst maður hafa átt að halda sig heima og reyna að læra meira hehe:haha: Nei, nei, þetta er ágætt líf. Það sem skiptir mestu er að maður sé að læra það sem maður hefur áhuga á og þá gengur þetta allt saman.
En það næsta á dagskrá hjá minni er að skella sér vestur á grímuball KFÍ og vá hvað mig hlakkar til. En var samt að fá þær "ánægjulegu" fréttir í dag að ég þarf að taka eitthvað heljarinnar tölfræðipróf þá sömu helgi, svo að það setur smá svartan blett á gleðina:whut: Því er bara um að gera að reyna að vera algjörlega klár fyrir þetta skemmtilega próf og þá ætti maður að geta afgreitt þetta á no time og haft tíma afgangs til að detta almennilega í það og taka þátt í gleðinni fyrir vestan.
Jæja, dúllurnar mínar. Þetta hefur kannski ekki verið neitt áhugavert blogg, en þið vitið þó að ég er á lífi (ennþá alla vega, get engu lofað með að ég verði enn lifandi í næstu viku þar sem bækurnar gætu gleypt mig, gert mig vitstola, sem verður til þess að ég haldi að ég geti flogið og stekk fram af svölunum syngjandi "Ég flýg eins og fugl" með Nelly Furtado hahaha, nei kannski heldur hæpið):haha: Alla vega, þá verð ég að fara að halda áfram að læra þar sem það bíður mín stórt og mikið próf á morgun.

Love you sweeties, kiss kiss

P.S. Inga mín, ég vona að þetta hafi gert þér kleift að eyða alla vega 3 mínútum af tímanum þínum í vinnunni hehe. Love you baby girl:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 14:09:23 / thea

Samkennd

Pæling dagsins:

Hafið þið spá í hvað fólk er yfirleitt dómhart og gagnrýnið á aðstæður og athafnir annarra?

Ég tel þetta vera mjög mikilvægt umræðuefni og eitthvað sem við ættum að gera okkur grein fyrir strax svo að við getum tileinkað okkur meira umburðarlyndi og skilning í garð annarra. Málið er einfaldlega svo að þegar við förum að kafa dýpra ofan í ástæður þess að slíkt á sér oft stað, þá er við þessu að finna mjög einfalt svar: “Við dæmum aðstæður annarra alltaf útfrá ytri aðstæðum, en aðstæður okkar sjálfra út frá innri aðstæðum.” Það sem þetta segir okkur er einfaldlega það að þegar við metum af hverju fólk gerir þetta eða hitt, eða hagar sér á einn hátt eða annan, þá dæmum við það eins og við sjáum það, þ.e. frá ytri ástæðum. Segjum sem svo að við snúum svo dæminu við og við séum að meta af hverju við séum að gera þetta eða hitt, eða að haga okkur á einn hátt eða annan, þá leitum við ávallt ástæðnanna innra með okkur, þ.e. við skilgreinum aðstæðurnar út frá innri ástæðum. Nú veit ég að þið eruð að hugsa með ykkur hvort að þetta geti verið rétt og komist líklega að þeirri niðurstöðu að svo sé og þá er málið bara að greina þetta aðeins betur og reyna svo að tileinka sér nýjan hugsunarhátt.
Þið vitið að eftir því sem lengra líður á lífið því meiri reynslu öðlumst við og því meiri vitneskju öðlumst við, en hversu mikinn skilning, umburðarlyndi og tilfinningalegan þroska tileinkum við okkur með ári hverju? Þessu er ekki auðsvarað. Ég er viss um að við viljum öll halda því fram að við séum mjög skilningsrík og umburðarlynd og jafnframt að við séum búin að þroskast tilfinningalega með hverju ári síðustu ár. En hversu rétt er það þegar öllu er á botninn hvolft? Ef þú getur litið til baka núna og yfir nútíðina einnig þá er ég viss um að þú getir rifjað upp allmörg atvik þar sem þú getur viðurkennt fyrir sjálfri/sjálfum þér að þú hefðir getað afgreitt aðstæðurnar betur og af meiri skilningi. Og hver getur ekki litið til baka og jafnvel á daginn í gær og munað eftir því að þú varst að tala um einhvern og dæmdir hann út frá ytri aðstæðum í stað þess að setja þig í hans spor, þ.e. hugarheim hans, og reyna að skilja aðstæðurnar út frá hans sjónarhorni? Ég er viss um að þetta eigi við um okkur öll og ef við bara reynum að túlka okkar dóma og gagnrýni í þessu ljósi þá held ég að við komum öll hálfilla út, því miður. En þetta þarf þó ekki að vera svo slæmt. Við höfum ávallt rúm fyrir meiri þroska, það er kosturinn við lífið og tilveruna. Við verðum að leita innra með okkur sjálfum annað slagið og reyna að bera kennsl á hvað það er í fari okkar sem betra mætti vera. Ekkert okkað er fullkomið og því nokkuð ljóst að við öll höfum að geyma einhverja galla eða einkenni sem við gætum slípað og reynt að bæta.
Það fyrsta sem við gætum til dæmis gert er að gera okkur grein fyrir að öll eigum við okkur sögu. Við eigum öll okkar lífsreynslu sem bæði er persónuleg, þ.e. öllum (eða alla vega flestum) hulin, og sjáanleg, þ.e. það sem öðrum er ekki hulið. Við erum ekki einu manneskjurnar sem geta haft góðar og gildar ástæður fyrir því sem við gerum, það hafa allir. Það sem við þurfum því að gera er að átta okkur á að lífið er misjafnt hjá hverjum og einum, en það sem við öll eigum sameiginlegt eru tilfinningar, þ.e. innra umhverfi. Þetta innra umhverfi er oft mjög ólíkt, en grundvallartilfinningar eins og t.d. gleði, sorg, reiði, biturleiki, depurð, hamingja er eitthvað sem við upplifum öll. Það sem greinir okkur oft að er hins vegar að við upplifum þessar tilfinningar ekki alltaf eins. Hver og einn metur sínar tilfinningar á mismunandi hátt og hegðun hans og skap kemur misjafnt fram eftir því hvernig hann túlkar aðstæður sínar. Það sem við getum svo gert út frá þessari vitneskju er að staldra við næst þegar við rekumst á eitthvað atvik sem vekur athygli okkar, setja okkur í spor tiltekinnar manneskju og reyna að túlka aðstæður hennar út frá innra umhverfi, þ.e. að gera okkur grein fyrir að öll eigum við okkar sögu og öll höfum við okkar innri ástæður fyrir því hvernig við högum okkur og hvað við gerum. Þið munuð mjög fljótlega finna að slíkt mat kemur sér mun betur fyrir ykkur sem og aðra og í leiðinni fara að sjá fólk í svolítið öðru ljósi. Þannig að næst þegar þið sjáið til dæmis einhverja konu sem er blindfull og að gera einhvern andskotann af sér, staldrið þá við áður en þið dæmið hana og reynið að setja ykkur í hennar spor og ímynda ykkur hvaða ástæður gætu legið að baki hegðun hennar. Þær eru ekki augljósar því við eigum oft erfitt með að átta okkur á hvað veldur hegðun fólks, en oft er þó auðvelt að gera sér í hugarlund hvað gæti mögulega útskýrt tiltekna hegðun og þarf þar af leiðandi ekki alltaf að finna skýringar á hegðun fólks út frá ytri aðstæðum, þ.e. því sem augljóst er og okkur sýnilegt.
Þannig að samkennd og skilningur er lykilatriðið gott fólk og vona ég að þessi lesning fái ykkur til að hugsa og jafnvel temja ykkur nýja hugsun ef þið teljið þörf þar á.
Ég las eitt sinn í bók að dyggð kemur ekki frá því einu að viðurkenna gallana sína, heldur frá því að reyna að lagfæra þá, og tel ég þessa speki eiga vel við um það sem að ofan er.

Þið verðið að afsaka umræðuna, en ég hef mjög mikið verið að spá í þessu síðasta árið og að reyna að temja mér þennan nýja hugsunarhátt. Ég verð að viðurkenna að fyrir mitt leyti þá sé ég fólk í allt öðru ljósi í dag en ég gerði áður og mér líður betur fyrir vikið. Það er oft mjög erfitt að breyta hugarfari sínu og enn erfiðara að breyta hegðun og laga hana að nýju hugarfari, en það er hægt ef við bara viðurkennum fyrir sjálfum okkur að það sé eitthvað í okkar fari sem mætti bæta. Og eins og þið vitið, þá er ég að læra sálfræði og því nauðsynlegt að tileinka sér aukið umburðarlyndi og skilning í garð annarra, sem og að fara að spá í hinum ýmsu tilfinningalegu þáttum og samskiptum sem einkenna manninn.

Ég vona að þið takið eitthvað mark á þessari umræðu, því um leið og við viðurkennum fyrir okkur að við séum öll mannleg og höfum galla sem þessa þá gerir það okkur ekki aðeins að betri manneskjum heldur hjálpar okkur að hjálpa hver öðru.

Kossar og knús

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 16:31:53 / thea

Love is in the air....ekki hjá mér samt hehe

Jæja litlu dýrin mín!
Ég er víst ekkert að skána í blogginu og hér með lýsi ég því yfir að ég kem til með að blogga þegar ég kem til með að blogga, því ég á hvort sem er sáralítið líf þessa dagana og lítið gaman fyrir ykkur að lesa um hvað ég lærði mikið þennan dag, hvort ég hafi eitthvað sofið eða hvort ég hafi fengið mér Cheerios í morgunmat.
Helstu fréttir þessa dagana eru ekki svæsnar, því miður. Er í einhverri brjálaðri skólatörn og kemst lítið annað að en námið þessa stundina. Mér tókst nú samt að skella mér í frábært afmælisteiti hjá honum Vilhelm s.l. föstudag og skemmti mér auðvitað frábærlega langt fram á morgun. Það var víst skilyrði að mæta í grímubúning og ég, Helga og Sara sem höfðum alls engan tíma fyrir slíkan undirbúning, redduðum málunum einfaldlega með því að skella okkur í Hagkaup og kaupa gerviblóm og greinar, síðan var allt þetta dóterí sett í hárið á sér, málað blóm í andlitið og úr því urðu þrír undurfagrir blómálfar hehe:haha: Svo verður nú að minnast á það hvað bollan var góð. Hún var svo góð að maður fór sko létt með að skella í sig tíu glösum á korteri og fólk farið að skúra gólfið með sparifötunum snemma kvölds, svo að það verður nú seint toppað. Sem sagt, frábært teiti í alla staði og þakka ég kærlega fyrir mig.
Annars er ansi lítið annað að frétta. Er að reyna að samræma námið og undirbúninginn fyrir veislustjórnina í brúðkaupinu hjá Kristínu og Einari og gengur það svona misvel. Ég ýmist læri of mikið og gleymi hinu eða þá sekk svo algjörlega ofan í skemmtiatriði og ræðuhöld að ég gleymi að læra. Vantar mjög svo að finna hinn gullna meðalveg í þessum efnum svo að ef þið hafið einhver ráð endilega látið mig vita.
Verð nú líka að viðurkenna að ég er alveg að fara overboard af spenningi fyrir brúðkaupið. Ég á bara eina systir og þessi ást er að fara að gifta sig eftir rúman mánuð!! Vá, þetta verður sko æðislegt í alla staði:D

Ég skal reyna að láta heyra í mér á næstunni, en ef ekkert gerist þá vitið þið að það er einfaldlega vegna þess að ég á ekkert líf og hef engu að segja frá. Ég ætti kannski að fara að hætta að tala um mitt daglega líf á þessu bloggi og fara að koma með pólitíska og heimspekilega pistla hérna reglulega, þá þarf ég alla vega ekki að reyna svona mikið að finna eitthvað að segja hehe. Þetta er kannski ágætis hugmynd. Endilega látið vita ef þið viljið að ég fari að henda fram áróðri og rökræðum hérna og ég skal reyna að blogga meira ef það er ykkar ósk híhí:haha:

Jæja, að lokum vil ég kasta ástarkveðju, kossum og knúsi á afmælisbörn dagsins, þau Einar og Engilráðina mína. Þetta eru tvær þær yndislegustu manneskjur sem hugsast getur svo að þetta hlýtur að hafa verið góður dagur að fæðast á.

Kiss kiss

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 23:38:11 / thea

Life is beautiful :O)

Jæja strumpar, þetta er bara farið að vera mánaðarlegt afrek hjá mér hehe:O) Ok, ég er ekki að standa mig í þessu, það er alveg satt hjá ykkur, en þetta er bara alveg farið að mæta afgangi hjá manni þessa dagana. Alla vega þá er helling búið að gerast. Mikið djamm búið að vera í gangi síðasta mánuðinn. Það virðist vera alveg sama hvort maður sé búinn að ákveða að hafa bara rólega helgi því þá kemur alltaf eitthvað uppá, einhver svakaleg skemmtun hér eða þar og maður bara getur ekki látið sig vanta híhí. Þið vitið hvernig þetta er:D En áður en þið lesið meira, TAKIÐ EFTIR!! Ég á ekki við drykkjuvandamál að stríða heldur á ég við drykkju að stríða. Það er stór munur þarna á því fólk sem á við drykkjuvandamál að stríða þarf að fara í þurrkara á meðan fólk eins og ég þarf bara aðeins að kíkja út á snúru annað slagið í smá viðrun og það er akkúrat það sem ég nota virku dagana í:haha:

Já það sem á daga mína hefur drifið síðan síðasta færsla kom:

Fann loksins bíl. Var alls ekki sátt við bláa litinn á honum til að byrja með en hann vandist þó nokkuð fljótt og er hann orðinn hluti af hjarta mínu í dag:D

Brjálað afmælisteiti hjá henni Garú minni. Svakalega gaman, allir hauslausir og eru miklar vangaveltur um hvort að Burn partýið frá FM eigi þar sök í máli hehe:D

Annað brjálað afmælisteiti hjá henni Söru minni. Allsvakalega gaman þar og löggan meira að segja mætt að kvarta á slaginu hálf tólf:D

Djamm, djamm og meira djamm.

Svo var það stelpudjamm er hún Gyðus lenti á klakanum. Geðveik skemmtun svona rétt áður en haldið var vestur á firði í annað djamm.

Keyrði vestur með henni Gyðu minni. Endalaust skemmtilegur rúntur hjá okkur vinkonunum og er ég nokkuð viss um að við höfum slegið heimsmet í að blaðra því við hættum varla að tala nema til að draga andann alla leiðina að Skutulsfirðinum.

Svo tók við svaka djamm á Ísó á föstudeginum og svo eitt það besta partý sem ég hef nokkru sinni tekið þátt í á laugardeginum, þegar hún Ásthildur mín varð fertug. Enda var þessi ferð eingöngu farin til þess að vera viðstödd þennan merka áfanga og ekki sé ég eftir því.

Svo er það síðasta helgi. Það var auðvitað djammað enn og aftur því eins og ég segi þá er bara endalaust eitthvað að gerast. Í þetta skiptið var það kveðjuteiti fyrir hana Sungun og var þar skeggjaþema sem vakti mikla kátínu hjá liðinu. Og á laugardeginum skelltum ég Inga og Sara okkur á tjúttið. Sara fór reyndar snemma frá okkur þar sem hún "hafði annað að gera" en ég og Ingus skelltum okkur í teiti til kallsins hennar og var þar mikið fjör á bæ. Enda hitti ég þarna föngulegan ungan pilt og endaði með honum á húrrandi rónafyllerýi á Amsterdam. Mikil gleði í gangi þar hahaha:haha:

Svo gekk lífið bara sinn vanagang þarna inn á milli (ekkert mikið fréttnæmt við það;).

Það sem framundan er:

Gellurnar mínar eru að koma suður á fimmtudaginn, þ.e. mamma, Brynja og Þórdís og býst ég fastlega við að mikil kátína fylgi því. Föstudagurinn er alveg óráðinn en ég hef lúmskan grun um að hann endi í að við höngum í gardínunum hjá henni Kiddý og drukknum svo í pottinum. Á laugardeginum er svo hið árlega frænkupartý og er ég handviss um að það partý komist á topp 5 fyrir árið 2007.

Þið haldið kannski eftir þessa lesningu að ég leggist bara í dvala á sunnudögum og vakni ekkert aftur fyrr en á föstudögum til þess að kíkja aðeins í könnu, enda er það ekkert skrítið þar sem ég skrifa ekkert annað en að ég hafi verið á djamminu hér eða þar. En örvæntið ekki, ég er ekki svo langt leidd (ennþá alla vega) og legg allan minn metnað í bókarlestur alla virka daga til þess að lífga við þær sellur sem ég drap helgina áður hehe:haha: Það er sem sagt ekki enn orðið mjög dapurt í efri byggð hjá mér og verður vonandi aldrei. Þið sem fattið þennan eruð án efa liggjandi í gólfinu, emjandi af kæti og gleði því þessi verður aldrei gamall hahaha:haha:

Jæja, þetta er orðið ansi langt þannig að ég sé ykkur í næsta stríði litlu strumpar.

Ástarkveðjur á alla. Kiss kiss


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 14:32:17 / thea

Hola litlu krúttbomburnar mínar!!

Vá, það má nú með sanni segja að ég sé formlega lélegasti bloggari í heimi. Ég veit að ég er alls ekki búin að vera að standa mig í stykkinu, en í sannleika sagt þá hef ég bara ekki nennt að blogga í sumar, sorry guys:S
En já, það hefur nú ansi mikið á daga mína drifið síðustu mánuði og allt of mikið að fara að segja frá því öllu hér. Svona til að taka þetta allt saman þá var frábært að vera með familíunni og vinunum fyrir vestan í sumar, en það er líka alltaf gott að vera kominn heim í borgina aftur. Ég kom suður þann 12. ágúst og fór þá í þrjú sjúkrapróf upp í háskóla og hélt ennfremur að ég væri að fara að taka endurtektarpróf í einu faginu síðan í vor. Vá, þið getið ímyndað ykkur hvað mín var brjáluð þegar kennarinn minn felldi mig í prófinu í vor og það með 2,5, því ég hef aldrei fallið í neinu á allri minni ævi!!! Það þýðir nú svo sem lítið að væla yfir slíku en í mínu tilfelli var ég alls ekki sátt því að ég vissi að mér hefði gengið vel og að ég hefði náð prófinu. En nei, 2,5 var það og þar með þýddi það endurtekt. EN hvað haldið þið að ég komist svo að tveimur dögum áður en ég átti að mæta í endurtektarprófið? Ég var ekki skráð í það svo að mín fer auðvitað að panica um að það þýði eitt aukaár í skólanum, en nei, ég var auðvitað ekkert skráð í prófið því ég féll ekkert í því eins og ég fékk uppgefið í vor!!! Nei nei, mín stóð sig sko aldeilis eins vel og ég hélt eftir að ég tók prófið og náði líka þessari fínu sjöu í prófinu!! Svona getur þessi háskóli verið skrítinn og erfiður, maður veit aldrei hverju maður á von á eða hvenær einkunnir eru raunverulegar!!:D
En þetta fór nú allt vel og vonandi er ég að byrja á mínu öðru ári í sálfræðinni á mánudaginn næsta svo að krossleggið fingurna fyrir mig um að ég nái þessum sjúkraprófum (er reyndar búin að fá eina einkunn og ég náði, vei jei vúhú;):haha:

Já, síðan prófunum lauk þá hef ég verið ansi upptekin við að skerpa drykkjumannstaktana og þar með djamma frá mér allt vit með skvísunum mínum. Enda var síðasta helgi tær snilld í alla staði og ekki verður nú leiðinlegra á næstu helgi þar sem stefnan er sett á brjálað afmælisteiti hjá henni Garú minni (Helgu Guðrúnu). Ég treysti alla vega á að þar verði stuðið því eins og við stelpurnar komumst að í gær þá er það nú bara svo að þar sem Austfirðingar og Vestfirðingar mætast, þar er partýið!!;)

Já annað sem er að frétta af mér og alveg að gera mig brjálaða er að ég er bíllaus. Seldi bílinn minn fyrir vestan áður en ég kom suður og hef verið bíllaus í 2 og hálfa viku, sem er bara alls ekki að gera sig. Ég er óðum að reyna að finna mér nýjan bíl og það vonandi tekst fyrir helgina. Ef ekki þá bara arka ég inn á næstu bílasölu sem ég finn og læt selja mér hvað sem er (því Guð má vita að þessir bílasölumenn gætu logið mig fulla um hversu mikinn eðalkagga ég væri að kaupa og myndi líka trúa þeim, án gríns). Þannig að krossleggið fingurna aftur fyrir mig um að ég finni mér nýjan vagn fyrir helgina, hehe:D

Jæja, þá segi ég bless í bili. Ég skal reyna að vera duglegri að blogga en ég lofa engu því að þá á ég bara eftir að svíkja það hehe:D

Lots of love and kisses

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 14:07:44 / thea

Úff, lokaprófin byrjuð....

Þannig að nú er ekkert í stöðunni annað en að lesa, lesa og lesa svo meira. Það verður sem sagt ekki mikið líf hér á bæ fyrr en 15. maí svo að þið heyrið eflaust lítið í mér fyrr en þá. Endilega samt sendið mér góða strauma því að Guð má vita að ég þarf á þeim að halda ef ég á að geta komist í gegnum þetta allt saman.

Gangi ykkur vel sem eruð í sömu sporum og ég:D

Kossar og knús til allra, luv ya guys:P


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 14:09:46 / thea

Páskadjammið.....and then the real life starts again

Halló fagra fólk, þá hef ég loksins gefið mér tíma til að hanga á bloggsíðunni minni og koma með smá upprifjun á því súperdjammi sem páskarnir höfðu í för með sér. Það fylgdu þessum páskum ansi mörg lög sem einkenna hvert kvöld svo ég læt sum þeirra fylgja með hverri frásögn og þið sem vorum á staðnum vitið hvað ég er að tala um:D
Alla vega þá byrjaði þetta allt saman á miðvikudeginum fyrir páska með frábærum rúnti frá Reykjavík city til Ísafjörður djamm central með Írisi og Hrafnkeli. Klukkan var farin að renna í ellefu þegar við vorum að renna í hlað svo að mín var auðvitað búin að svolgra í sig smá bjór og rósavíni á leiðinni til að hita upp fyrir kvöldið. Svo leið ekki á löngu þar til hún Inga mín kom brunandi úr borginni líka og við stöllur ákváðum nú að við skildum sko ekki sóa þessu dýrmæta fríi sem okkur var gefið og það skildi sko verða djammað alla dagana. Þannig að þarna var ekki um annað að ræða en að halda áfram að svolgra í sig og hitta svo Gyðusinn okkar á Langa. Endaði þessi nótt við eldhúsborðið heima hjá Gyðu þar sem við vinkonurnar vorum nú aldeilis skrautlegar, enda búnar að drekka eins og okkur væri borgað fyrir það, skella okkur á fjörið á Langa, fara í eitt gott partý og svo loks slakað aðeins á heima hjá Gyðu áður en við fórum loksins heim.
Við bólfélagarnir, ég og Inga, vöknuðum svo eldhressar á fimmtudeginum og hafði þetta áfengismagn greinilega ekki tekið frá okkur neina orku svo að þetta var góðs viti fyrir næsta kvöld. Við ákváðum þó að skella okkur á Langa um daginn og fá okkur eitthvað svaðalegt að borða sem átti vel við á slíkum degi og svo var bara komið sér í gírinn fyrir kvöldið. Ég fór í hið árlega frænkupartý og má með sanni segja að þetta hafi verið eitt það besta yet því að slíkt var fjörið á liðinu. Greinilegt að þessi drykkjugen eru í ættinni því að síðustu fyllibytturnar voru ekki að skríða heim fyrr en eftir klukkan sjö um morguninn. Þetta kvöld mun alltaf lifa í minningunni því að eftir þetta þá þarf maður bara að hlusta á Nínu með Stebba og Eyfa og þá kemur stemningin beint í æð.
Svo var vaknað á föstudeginum langa og þá vissi ég að það biði mín að halda afmælispartý um kvöldið svo að mér leist nú ekkert á blikuna þegar heilsan ætlaði eitthvað að fara að bregðast mér og taka upp á því að leyfa þynnkunni að ná völdum. En nei, þarna kom hún Inga mín með afbragðsráð eins og sannri fyllibyttu sæmir og sagði að það eina í stöðunni væri að skella í sig einum afréttara. Og viti menn!! Við vorum orðnar þvílíkt sprækar hálftíma seinna og vorum því strax komnar í djammgírinn á ný og ekkert annað í stöðunni en að bruna á partýstaðinn og halda afmælið með stæl. Partýið tókst með eindæmum vel og hef ég sjaldan séð jafn mikla stemningu á liðinu þar sem þakið virtist ætla að fara af húsinu er leið á kvöldið. Enda vorum ég og Inga búnar að heita því að það færi sko enginn á ball fyrr en stóra eplasnappsflaskan væri galtóm. Það tóku auðvitað allir vel í þetta og drykkjuleikirnir voru alveg að gera sig þar sem fólk næstum reifst um eplasnappsflöskuna þegar það fór að líða á kvöldið. Svo kom að því að fólk fór að skella sér á ball með Bermuda í Hnífsdal og urðu það sko ekki vonbrigði því þessi hljómsveit var tær snilld og það verður sko fjölmennt á ball með þeim að ári liðnu. Þemalag þessa kvölds mun ávallt lifa í minningunni því að fólk ætlaði að fara yfirum í partýinu þegar það hljómaði. Þið sem voruð á staðnum munið þetta: "Put your hands up for Detroit":haha:
Þetta afmæli var frábært í alla staði og vil ég þakka Þórdísi minni æðislega fyrir að lána mér húsið sitt svo að hægt væri að koma öllu þessu liði fyrir. Luv ya ástin mín:D
Jæja, svo er komin laugardagur og ég og Inga litum á hvor aðra og segjum: Úff, dagur fjögur!! Hahaha, heldur betur búnar að djamma og páskarnir bara hálfnaðir. En nú var ekkert annað en að duga eða drepast og kusum við auðvitað að halda höfði okkar með reisn og halda þetta út. Planið hjá mér var alltaf að kíkja á Aldrei fór ég suður, en ég gerðist aldrei svo fræg að komast á leiðarenda þar sem þetta endaði með smá teiti heima og svo skellti mín sér á krúsina með ofurbandinu Baldur og Margrét. Úff, þetta ball mun sko lifa lengi í minningunni því að ég og Inga fórum á límingunum á dansgólfinu og skiljanlega, því þegar Inga mætir á svæðið hljómar lagið okkar og hún gerir dauðaleit að mér en finnur mig ekki fyrr en lagið okkar er búið. Þetta voru auðvitað svo svakaleg vonbrigði að við grátbiðjum Möggu að spila lagið aftur, en bjuggumst þó ekki við að það myndi gerast. En viti menn, hún gleymdi okkur ekki og rétt áður en ballinu lauk kemur lagið okkar og þarna bókstaflega rifnaði þakið af krúsinni vegna píkuskrækja og kátínu hjá okkur skvísunum, hehe:haha: Úff, mun sko aldrei gleyma þessu augnabliki því að þetta er eitt það besta moment sem ég hef upplifað. Elska þig gúrkan mín og alveg á hreinu að ég gefi þér allt mitt líf, hehe:haha: Þannig að fyrir ykkur sem ekki hafið komist að þemalagi kvöldsins þá er það "Ég gef þér allt mitt líf" og ætla ég að láta "Góða ferð" fljóta með því það setti alveg punktinn yfir i-ið í lok ballsins.
Ussussuss, nú er kominn páskadagur, sá dagur sem ég var viss um að enginn myndi nenna að gera neitt nema að éta, svo að ég var alveg með það á hreinu að þetta kvöld yrði bara rólegt og ekki mikið djamm. En auðvitað endaði þetta með spili heima hjá Brynju og auðvitað var kíkt í könnu á ný. humm, dagur fimm kominn hérna hehe:haha: Alla vega þá átti þetta nú samt bara að vera rólegt en þegar líða fer á nóttina en mín auðvitað enn í partý-over drive eftir allt þetta djamm og gat nú ekki annað en kíkt á ball. Og sem betur fer því að þetta var nú alveg frábær endir á frábærum páskum. Þetta endaði auðvitað svo í partýi eftir ball og lítill fugl hvíslaði því að mér að ég hafi komið svo seint heim næsta dag að lögreglan væri farin að leita að mér hahahaha:haha: En ég trúi þessu nú rétt mátulega og held því staðfastlega fram að ég hafi verið komin heim strax eftir ball múhahaha:D

En já, svona voru þessir æðislegu páskar og því miður tók svo raunveruleikinn við aftur og nú er ekkert framundan nema endalaus lærdómur, svo að ég held í vonina um að ég muni verða lifandi þegar kemur að Eurovision því eins og staðan er núna þá er ég ansi hrædd um að heilinn á mér muni bráðna vegna of mikillar einbeitingar og ég muni verða jörðuð daginn fyrir Eurovision hehehe:haha: Nei nei, segi svona, þetta verður erfitt, en fyrst ég gat á þessum gamals aldri staðið mig á djamminu fimm daga í röð þá er ég nokkuð viss um að ég geti allt múahaha:P

Er núna bara að læra og læra svo að ég nái að klára þetta allt á tilsettum tíma til að komast í ferminguna hjá litla bróðir um helgina. Úff, strákurinn bara að fara að fermast, vá hvað tíminn líður hratt. En alla vega þá ætla ég að nota tækifærið og þakka öllum fyrir frábæra páska. Þessir páskar eru sko komnir inn á topp 10 djammlistann hjá mér og hefði það aldrei orðið ef ekki hefði verið fyrir ykkur fallega fólkið mitt. Kossar og knús til ykkar allra.

Svo á pabbi afmæli í dag og vil ég nota tækifærið til að óska honum innilega til hamingju með daginn. Elska þig. Kossar og knús.

Jæja peepz, þetta er búið að vera svo langt blogg að það verður að duga ykkur þangað til í maí þegar ég er búin í prófunum. Sé ekki fram á neitt líf á næstunni þannig að ég myndi hvort sem er ekki hafa neitt merkilegt að segja hehe:haha: Until then, gangi ykkur sem eruð í prófum rosa vel og þið hin hafið það gott:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 02:25:33 / thea

Páskadjammið framundan vúpí

Hæ sætu strumpar!

Jæja, þá er afmæli minns liðið og ég orðin árinu eldri. Vil ég nota tækifærið og þakka öllum fyrir þann hlýhug sem þeir sýndu mér á þessum sorgardegi múhahahaha:haha: Nei smá spaug, en í alvöru takk fyrir allar gjafirnar og kveðjurnar sætu dúllur. Það er alltaf gott að heyra að maður sé smá eftirminnilegur og eigi þá kannski stað í hjörtum fólks:D
Anyways, þá var afmælisdagurinn alveg frábær. Skellti mér pa Kringlan í smá verslunarleiðangur og svo auðvitað dýrindis afmælistertu og kaffi á Nk kaffi. Enda eiga nú allir skilið að fá tertu á slíkum dögum ekki satt? En svo var skellt sér í smá djúserí til Söru sætustu og svo var ferðinni heitið á geggjaða pöbbastemningu á Viktor. Takk Gyða, Magnea og Sara fyrir frábært kvöld.
Á föstudagskvöldið var enn og aftur haldið hátíðlega upp á daginn því að allir gátu ekki djammað neitt að ráði á fimmtudeginum. Við skvísurnar, ég, Gyðus, Dagný og Magnea fórum út að borða á Madonnu og fengum alveg frábæran mat. Því næst var haldið heim til mín í töfratyppi og bjóra. Ég og Gyðus fórum alveg hamförum í snöfsunum og töfratyppunum og hringdum í alla sem við þekktum þar sem við vorum alveg vissar um að allir væru að vonast eftir símtali frá okkur hehe.
Stuttu seinna hefur Ingan mín samband, en hún hafði verið í sambandi við mig viku áður til þess að tilkynna mér að hún væri sko búin að senda mér æðislega afmælisgjöf, sem nota bene yrði sko besta gjöfin sem ég fengi, og að Hanna Rósa myndi koma með hana til mín þegar hún væri búin að vinna á föstudagskvöldinu. Alla vega, þá hefur Inga þarna samband og spyr hvort að ég sé ekki heima því að Hanna væri búin að vinna og ætlaði að koma með pakkann til mín. Ég segi henni auðvitað að við séum heima og ekkert á leiðinni út á næstunni. Jæja, stuttu seinna hringir dyrabjallan og mín skokkar til dyra þar sem ég átti nú von á Hönnu Rósu. Ég opna dyrnar og alveg að fara að heilsa Hönnu (þar sem ég átti nú ekki von á neinum öðrum) og hver haldiði að standi hinum megin við dyrnar? Hún Engilráð holdi klædd!!! Ég hugsa að það hafi verið dýrlegt að sjá svipinn á mér á þessu momenti því að ég var ekki alveg að trúa því né fatta að þetta gæti í alvöru verið fallega gúrkan mín þarna á móti mér. En vá hvað þetta kom mér á óvart! Þegar ég loksins náði að anda og gera mér grein fyrir að þessi elska væri komin til mín á afmælinu þá var sko hoppað, faðmast, kysst og skrækt í korter!! Ég held í alvöru að það hafi heyrst í okkur til Mongólíu því við vorum svo háværar. Þetta var alveg eins og í bíómyndunum þannig að þið ættuð að geta séð þetta fyrir ykkur hehe. Ekki var svipurinn á henni Gyðu minni skárri, hún var í símanum á þessu momenti og hálfpartinn datt úr sambandi af sjokki og rétt náði að nötra út úr sér: Inga Ósk var að koma!!! Inga Ósk er hérna!! Hahahahaha, þetta var alveg snilld. Vá hvað ég elska gúrkuna mína mikið fyrir þetta því þetta var albesta afmælisgjöf sem ég hefði getað hugsað mér:haha:
Svo auðvitað héldum við dömurnar áfram að djamma like crazy enda ekki annað sem kemur til greina þegar við komum saman. Við skelltum okkur svo í bæinn, djömmuðum þar lengi vel, hittum svo úber skemmtilega drengi og enduðum í partýi heima hjá mér til hádegis á laugardeginum!!! Ekki slæmt það!! Greinilegt að aldurinn hefur ekki haft áhrif á drykkjugenin mín góðu hahaha:P
Laugardeginum var þar af leiðandi bara sóað í að vera þreyttur og illa sofinn eftir erfiða nótt svo að það var lítið gert þann daginn, enda kannski eins gott því að páskadjammið gífurlega nálgast óðum.

Minns er sem sagt kominn í vikufrí frá náminu og er stefnan sett á að skella sér vestur á miðvikudagsmorguninn. Ennfremur erum ég og gúrkan mín búnar að plana heavy djamm frá miðvikudegi til mánudags og svo að þetta allt saman klikki ekki þá höfum við líka tekið þá ákvörðun að vera bólfélagar yfir páskana og þannig koma í veg fyrir eitthvað hösl og rugl sem gæti orðið til þess að við myndum drekka minna múhahaha:haha: Guð, það verður bara gaman og hlakka ég ekkert smá til að hitta alla fyrir vestan. Ég vona að maður hitti sem flesta á djamminu á næstu dögum, en until then þá bið ég að heilsa ykkur krílin mín.

Kossar og knús


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 17:29:17 / thea

Aldurinn að læðast upp að mér

Halló púkar,
jæja nú fer óðum að styttast í hálffimmtugsafmælið góða og ekki veitir af að nota tækifærið til að blogga smá á meðan maður er ennþá ungur hehe:D Annars er lítið að frétta. Alltaf brjálað að gera í þessum skemmtilega háskóla og engin miskunn sýnd í neinu. Er að leggja lokahönd á ritgerð sem á að skila á morgun og þar með fæ ég smá námsfrí fram á laugardag svo að maður getur slakað aðeins á þegar ellin kemur og bankar á fimmtudaginn.
Ég, Gyða og Sara hittumst annars á laugardagskvöldið heima hjá Söru og kíktum aðeins í kokteila, hvítvín og öl svo að maður djammar nú alltaf annað slagið þrátt fyrir strembna dagskrá í skólanum hehe:haha: En kvöldið var auðvitað bara skemmtilegt og var kíkt í fjörið á Glaumbar, en ekki hvað? Þetta var ágætis upphitun fyrir helgina framundan enda ætlast ég til þess að það verði rúllandi fyllerí á föstudagskvöldið þar sem við skvísurnar ætlum að kíkja út að borða í tilefni afmælisins. Þar verður sko engin miskunn sýnd og allir þeir sem drekka minna en afmælisbarnið verða sendir heim og fá ekki boð að liðnu ári hahahaha:haha: Þannig að stelpur, komið ykkur í gírinn og búið ykkur undir allsvaðalega drykkju og rugl því það þýðir sko ekkert að vera með neitt hálfkák þegar maður er kominn svona á gamals aldur (maður verður að nota tækifærið og djamma með fullri reisn á meðan maður er enn ungur og göngufær):D
En nú ætla ég að vinda mér í að klára þessa ritgerð svo að maður geti farið að slaka á og bíða eftir að ellin læðist upp að mér. Læt heyra í mér á fimmtudaginn með fréttir um hvort nýjar hrukkur hafi myndast og hvort ég sé komin með Alzheimers.

Bless á meðan (og biðjið fyrir því að aldurinn dragi mig ekki til dauða áður en ég næ að halda upp á hann með stæl um helgina múahahahaha):klikk:


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 19:17:23 / thea

...............

Ok, hef bara ekki haft tíma í að blogga þar sem það er búin að vera svona Hell-week í skólanum undanfarið en ákvað að skella inn smá fréttum fyrir hana Ingu mína því að henni leiðist svo í vinnunni í útlöndum hehe, Luv ya baby-girl:D

Jæja, hvar skal byrja humm? Ferðin vestur á grímuballið byrjaði sérlega vel eða hitt og heldur. Við skvísurnar þrjár, ég, Sara og Gyða, ákváðum að æða af stað vestur á fimmtudagskvöldinu þar sem veðurspáin var svo hrikaleg fyrir föstudaginn og ætluðum þar með að vera á undan veðrinu. Þetta gengur allt voða vel en þegar við stoppuðum í Borgarfirðinum til að skreppa út í smók og Söru tókst að kveikja í hárinu á sér þá hefðum við getað sagt okkur að þegar við erum annars vegar þá ganga hlutirnir bara alls ekki eins og í sögu, hehe. Jæja, en við komust þó á Hólmavík og stoppuðum þar fyrir utan Lögreglustöðina til að kanna veðurfréttir fyrir restina af leiðinni. Það var ágætis veðurspá svo að við ákváðum bara að skella okkur upp á Steingrímsfjarðarheiðina. Við hefðum svo sem getað tekið það sem slæman fyrirboða að Sara var þarna nú þegar búin að kveikja í hárinu á sér og svo var lögreglustöðin líka mannlaus! Hvað er málið með það? Ég er nefnilega nokkuð viss um að ef einhver hefði verið þar þá hefði löggan ekki hleypt okkur af stað. En alla vega þá erum við búnar að keyra ansi langt upp á heiði þegar við sjáum fram á að þarna var ekki um annað að ræða en að duga eða drepast því við vorum komnar í sjálfheldu vegna gífurlegs blindbyls og hálku svo að það var ekki um annað að ræða en að halda áfram. Þetta var nú samt að ganga heldur hægt því að við sáum ekki einu sinni frá einni stiku til annarrar svo að ég skelli mér út um gluggann til að leiðbeina Gyðu áfram. Þetta gekk ágætlega þangað til ég var algjörlega frosin í gegn og þá tók Sara við. En Saran ákvað svo bara að skella sér út og ganga á undan bílnum, nema hvað Gyða fer sífellt að keyra hraðar og Sara farin að hlaupa við hliðina á bílnum. En allt í einu hverfur Sara sjónum og ég sé ekki betur en að hún sé horfin undir bílinn svo að ég garga á Gyðu: Þú keyrðir yfir hana!!! Gyða snarbremsar og þá kemur Saran allt í einu í ljós í glugganum, skriðin á fætur og segir: I´m all right. Þetta var svona You had ti be there moment, en guð hvað þetta var fyndið hehe. Ok, við erum sem sagt ennþá óhultar og gengur ferðin heldur hægt og þá kemur allt í einu í ljós bíll fyrir aftan okkur. Við förum bara út í kant til að hleypa honum fram úr, nema hvað þessi yndislegu hjón stoppa við hlið okkar og karlinn heldur betur stoltur af okkur skvísunum að vera komnar alla þessa leið og það á Yaris, hehe. Svo bjóðast þau til að keyra á undan okkur og við eltum bara ljósin á bílnum þeirra. þetta bjargaði algjörlega lífi okkar verð ég nú að viðurkennar. Þegar komið er að Hestakleifinni þá erum við algjörlega búnar að offa það að skella okkur þar yfir, en kallinn ekki alveg á því svo að við endum með því að elta hann þangað upp. Þetta gekk allt ágætlega þar til Gyða festi bílinn á skafli og ég, þar sem ég er nú ekki alveg talin hafa mikinn kraft hehe, var sett undir stýri svo að hinir gætu ýtt. Ég finn svo að bíllinn er alveg að losna svo að ég garga á liðið að fara frá því að ég sé að fara að bakka. En viti menn það heyrði auðvitað enginn í mér og ég bruna aftur á bak og keyri Gyðu nánast niður hehe. En eftir smá hlátur, marga snjóskafla, að festa okkur tvisvar í viðbót þá loksins komumst við niður af kleifinni og skiljum við þessi yndislegu hjón þar sem þau voru að fara í aðra átt. Við sem sagt höldum ótrauðar áfram og gengur allt voða vel þar til við komum í Mjóafjörðinn og þá kemur þessi þvílíki bylur og ég í miðjum snjóskafli slæda áfram og fyrir eitthvert kraftaverk bremsaði ekki og rétt náði að halda í okkur lífinu!!! Það var nú heldur betur mikið búið að ganga á í þessari ferð á þessum tímapunkti og vorum við vissar um að hlutirnir gætu ekki orðið verri, en viti menn við pikkfestum okkur aftur og sekúndubroti síðar stoppar bíll við hliðina á okkur og eru það ekki þessi fínu hjón aftur! Guð, við ætluðum held ég í gegnum sætin við skömmuðumst okkar svo mikið hehe. En þetta reddaðist allt saman því að kallinn var alla vega vitrari en við með að hafa skóflu meðferðis hehe. Og svo endaði með því að þau fylgdu okkur skísunum alla leið vestur á Ísafjörð svo að það má með sanni segja að þau hafi algjörlega bjargað lífi okkar þessa nóttina. En vegna mikilst spennings, geðveikra verkja í öllum skrokkrun þar sem við vorum búnar að sitja upptjúnaðar í bíl í níu tíma þá var ekkert annað í stöðunni en að skella sér heim til Gyðu í einn bjór er við komum á leiðarenda. Svo að farið að sofa og mikið hugsað til þess að það væri eins gott að þetta grímuball yrði þess virði þar sem við vorum búnar að leggja þvílíka ferð á okkur til að komast þangað hehe.
Og auðvitað var þetta grímuball toppurinn á tilverunni og sáum við sko ekki eftir því að hafa skellt okkur þangað, og í slíkri ferð:haha:

Hér fyrir neðan er linkur að myndunum sem Sara tók þessa helgi, svo að enjoy;)

www.photos.yahoo.com/sarahjalti

Svo tók við geðveikt helvíti á jörð í skólanum og náði ég ekki að sofa nema tvo tíma hverja nótt svo að ég gæti klárað allt sem klára þurfti. Svo að loksins þegar skólavikunni lauk síðast liðinn föstudag þá var ekki annað sem kom til greina en að skella sér á djammið til að slaka aðeins á. Svo að ég, Garú og Gyða skelltum okkar á Austfirðingadjamm á Players því að Villi og félagar í grúbbunni Outloud voru að spila ásamt fleiri hljómsveitum. Þetta kvöld endaði náttúrulega með því að við fórum á Glaumbar að hitta Söru og svo á Amsterdam til að klára næturdjammið hehe:haha: Og svo skelltum ég og Gyðus okkur aftur á tjúttið á laugardeginum og varð það kvöld ekki síðra en það fyrra, svo að ég náði alveg að hlaða batteríin upp á nýtt fyrir þessa vikuna sem verður því miður ekkert skárri en sú fyrri.
Núna er sem sagt ekkert annað á dagskrá en að læra þangað til í næstu viku þegar mín ætlar sér að halda upp á hálffimmtugsafmælið sitt helgina 30. - 1. apríl. Ég vona að sem flestir sjái sér fært að fagna þessum gamals aldri með mér, en nákvæmari leiðbeiningar um stað og stund munu koma í ljós síðar.

Jæaja, ég vona að þetta sé nóg blogg fyrir þig Inga mín, hehe. Skoðaðu svo bara líka grímuballsmyndirnar og þetta ætti þá alla vega að gefa þér klukkutíma activity í leiðindunum:haha: Luv ya sweetie og sakna þín alveg svakalega mikið.

Until later, kossar og knús til allra stumpanna minna


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 20:25:31 / thea

Allt er þegar þrennt er!!!

Jæja börnin mín góð, þá kemur ein úber djammfærsla hehe þar sem það var sko tekið fimmtudag, föstudag og laugardag með trompi:D Fimmtudagskvöldið var heldur rólegra en hinir dagarnir en ekki síður skemmtilegt þar sem ég, Sara og Inga Ósk hittumst heima og svolgruðum í okkur nokkrum bjórum og skotum. Síðan var kíkt á Glaumbar að fá sér fimm í fötu (sem í okkar tilfelli voru tíu í fötu hahaha). Gleðin endaði þó um eitt leytið þar sem þetta var nú fimmtudagur og öllu lokað snemma:D
Eftirvæntingin eftir föstudagsdjamminu átti líka heldur betur rétt á sér því að það djamm er sko komið á lista yfir eitt af topp tíu djömmum míns langa djammferils. Ég skellti mér á Norðfirðingadjamm á Broadway með Garú, Fanney og Villa og var maður sko kominn upp á stól að dansa í lagi númer 3 í Queen show-inu. Þetta show var magnað frá a til ö og ekki sakaði það stemninguna að Jónsi fór úr að ofan í lok sýningarinnar hehe. Það hefðu sko eflaust verið fullt af skjás eins merkjum í sætunum ef að gellurnar hefðu getað setið kyrrar;) Svo var auðvitað dansiball og stóð Villi sig eins og hetja í rokkarahlutverkinu. Klapp, klapp!! Eins og ég sagði þá var þetta eitt besta djamm ever og hugsa ég að það verði seint toppað:haha:
Laugardagskvöldið beið svo spennt eftir að mín færi á stjá og hittumst ég og Sara heima og helltum í okkur áfengi áður en ferðinni var svo heitið í útskriftarpartý hjá henni Ingu minni. Þar var nú ekki minna um drykkjuna og áður en við vissum af vorum við frænkurnar orðnar heldur skrautlegar hehe. En áður en við fórum í bæinn þá var einn gæinn í partýinu sem vildi endilega að við kíktum í partý til hans og ekki gátum við nú neitað því boði þar sem hann lofaði okkur góðu partýi og nóg af opal skotum (ekki það að við hefðum haft gott af því að drekka meira hehe). En partýið var nú heldur dauft og tekur þá Sara upp á því að fara að dansa við einhvern stól þarna (sem þótti auðvitað bara gott grín til að lífga aðeins upp á kvöldið), nema hvað gæinn verður eitthvað böggaður yfir þessu og ýtir Sörunni minni utan í vegg og ekki gat ég nú látið slíkt hátterni viðgangast. Ég meina hver kemur svona fram við kvenfólk? En nei, þetta endaði nú alls ekki svona því að gaurinn verður eitthvað illur og tekur mína bara eins og maður sé fimm kíló og vippar mér upp á öxlina og hendir mér út!!! Hugsið ykkur, mér hent út úr partýi í bókstaflegri merkingu hahaha. Nema hvað í öllum látunum þá byrja buxurnar að renna niðrum mig og ég enda næstum berrössuð við útidyrnar!!! Hugsið ykkur niðurlæginguna!!! Svona kemur maður bara ekki fram við neinn verð ég nú að segja. Og fólki var auðvitað ofboðið við öll þessi læti og ég, plús föruneytið ekki lengi að láta okkur hverfa frá þessu pleisi hehe:haha: Það verður nú að viðurkennast að þrátt fyrir að þetta hafi allt saman verið heldur óviðeigandi þá er þetta frábært til frásagnar hahaha. Ég meina hugsið ykkur bara ef þið hefðuð verið þarna fluga á vegg, það hefði bara verið fyndið hehe. En nei óhöppin enduðu ekki þarna því að örlögin höfðu greinilega ákveðið að þetta væri ekki mitt kvöld. Seinna um nóttina á Glaumbar þá er mín bara í rólegheitum að fá sér í glas á barnum og einhver gæi byrjar eitthvað að reyna við mig, en mín var nú ekki alveg að meika hann og sagði honum bara að tala við höndina og þá tekur gæinn sig til og bara ræðst á mína!!! Sem betur fer var vinur hans nú meiri herramaður en hann og náði að grípa um hnefann á honum áður en hann smashaði í andlitið á mér. Á þessum tímapunkti er maður nú farinn að halda að það sé eitthvað black light merki á ennninu á mér sem segir: "Not very hard to kill, Go ahead and try it" svo að mín röltir nú bara út af staðnum. En á leiðinni virðist vera svo svakalega gaman á Amsterdam svo að mín kíkir inn (ekki spyrja mig af hverju, því að ég er ekki einu sinni viss sjálf hahaha). Jæja, nema hvað þegar ég loksins finn mér sæti á staðnum og sest niður þá finn ég að eitthvað er að stingast í rasskinnarnar svo að mín rýkur upp úr stólnum og viti menn, mér tókst að setjast í eina stólinn í heiminum örugglega sem einhver hafði brotið bjórglas á!!! Og það þurfti auðvitað að týna þessi brot af buxunum mínum. Og svo var einhver þarna við hliðina sem segir (eftir að ég hafði sest nota bene) æi það braut einhver glas þarna áðan. Ég meina gat maðurinn ekki látið mig vita áður? En þarna hugsa ég nú, allt er þegar þrennt er, þetta hlýtur að vera komið nóg á einu kvöldi. Svo að förinni var því næst heitið heim á leið (þar sem ég taldi mig nú vera öruggari þar en annars staðar eins og málin stóðu hehe).
Og þannig lýkur þessari stórkostlegu djammhelgi minni. Ég vona að ykkur hafi ekki leiðst lesningin því að Guð má vita að ég mun vera að segja söguna um laugardagskvöldið þegar ég er orðin hundrað og að ryfja upp eftirminnileg moment hehe:haha:
Nú er lítið annað á dagskrá nema að vera dugleg að læra svo að ég geti komið mér vestur á föstudaginn til að vera viðstödd djamm ársins þar á bæ. Ég vona að sjá ykkur sem flest þar því að það verður án efa BARA gaman.

Grímuballs-djammpistillinn verður svo birtur eftir helgi svo að þið fáið engar fréttir af mér aftur fyrr en þá (enda held ég að þessi færsla sé að nálgast eina þá lengstu sem skrifuð hefur verið í bloggheiminum).

Until then sætu strumparnir mínir, kossar og knús8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 14:17:09 / thea

Illu er best af lokið....

Jæja börnin mín góð, ákvað nú að skella á ykkur kveðju þannig að maður sé nú aðeins að standa sig í þessu bloggi. Minns var að koma frá tannsa og líður bara alveg ágætlega held ég. Eins og þeir segja þá er illu alltaf best af lokið svo að það borgar sig alltaf að klára allt svona leiðinlegt og óþægilegt sem fyrst því að manni líður alltaf mikið betur eftir á;)

Nú eru bara 10 dagar í grímuballið fræga og ætla ég mér að telja niður dagana alveg fram að
3. mars, híhí, er nefnilega orðin heldur spennt. Ætla ekki alllir að skella sér á grímuballið? Ég vona að þið svarið öll á jákvæðan máta því að það ætti enginn sem er maður með mönnum að láta sig vanta í þennan geggjaða gleðskap. Annars er lítið að frétta af kellingunni. Var með einhverja helvítis flensu um helgina og lá næstum bara fyrir dauðanum held ég, hehe, en er þó öll að koma til svo að ekki hafa áhyggjur:D Auk þess eru náttúrulega endalaus próf og verkefni sem maður þarf að klára í hverri viku svo að maður má eiginlega ekkert vera að því að vera veikur því að hver klukkustund skiptir máli eins og staðan er nú. En ég sé nú samt fram á bjarta helgi og ætla mér að vera alveg í læri-fríi allan laugardaginn og skella mér í útskriftarpartý hjá hinum eina sanna verkfræðingi Ingu Ósk. Já það mun verða glatt á hjalla þar held ég nú bara:haha:
Ok, en alla vega þá verður þessi færsla ekki lengri þar sem ég þarf að fara að koma mér í skólann og læra meira um greiningu og mótun hegðunar, hehe, sko allt að gerast í þessu sálfræðinámi:D
En til að kasta kveðju á afmælisbarn dagsins, þá á Þórdís mín fagra afmæli í dag og það ekki nema 24 ára svo að hún er orðin yngri en ég þar sem minn er að verða hálffimmtugur, hehe:D Kossar og knús til þín þórdís mín og vonandi verður afmælisdagurinn frábær.

Til ykkar hinna sem ekki eigið afmæli í dag, heyri í ykkur seinna. Kiss kiss


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 16:52:47 / thea

Long time no blogg!!

Hæ sætu dýrin mín,

það er víst engin afsökun fyrir því að vera ekki búin að blogga í tvo mánuði svo að það þýðir lítið að segja sorry, hehe:D Alla vega þá hefur ekki mikið á daga manns drifið síðustu vikur. Það er brjálað að gera í skólanum og kröfurnar um lestur hverja viku eru heldur betur miklar þar sem það er nú ekki fyrir neina eina manneskju að geta lesið svona mikið, púff. En þetta reddast allt saman (vonandi);)

Já, og ég gerðist svo fræg að skella mér í fyrsta sinn á Sólarkaffið á Broadway um daginn og var heldur betur tekið á því í djamminu þá. Ég fékk þar langþráð tækifæri til að djamma með henni Garú minni eftir meira en árs fjarveru frá þessu gleðilífi áfengis og óhófs, hehe:haha: Og var það BARA gaman og réði gleðin ríkjum allt kvöldið og fram undir morgunn. Svo skelltum við skvísurnar, ég, Gyða, Helga garú, Svandís og Helga Sif okkur í afmæli hjá Tinnu Hrund á föstudaginn og er hægt að fullyrða að þar hafi gleðin og drykkjan verið í framsætinu og í fimmta gír. Ég held þó að ég hafi aðeins verið komin yfir strikið þegar líða tók á nóttina og var mikið spáð í að fara alfarið á snúruna í gær þar sem þynnkan var gjörsamlega að drepa mig:$ En, það þýðir lítið að vera með slíkar yfirlýsingar þar sem maður stendur nú aldrei við þær enda er stanslaus dagskrá í djamminu næstu vikur. Grímuballið fræga er óðum að nálgast og er heldur betur kominn fiðringur í liðið, enda hefur það djamm held ég bara aldrei klikkað. En raunveruleikinn verður þó skammt undan þar sem það verður brjálað að gera í skólanum og þýðir lítið að reyna að sleppa við það allt saman. Næst á dagskrá er held ég eitthvað Norðfirðingadjamm á næstu helgi eða helgina eftir það (er ekki alveg viss) og hef ég lúmskan grun um að það verði dúndur stuð. En alla vega þá skal ég reyna að vera duglegri að blogga, ég bara gleymi þessu alltaf þar sem það er nú lítið að gerast sem er í frásögur færandi.
Until then, kossar og knús:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 16:19:29 / thea

Jólin koma:O)

Hey púkar. Ég veit ég er ömurlegur bloggari en ég á bara ekkert líf svo að það er ekkert að blogga um. Fer í síðasta prófið á fimmtudaginn og svo beint í flug vestur og get ekki beðið því að fyrir vestan bíður mín að feitt djamm yfir allar hátíðirnar, vúhú;) Ég held ég hafi sjaldan hangið eins mikið á snúrunni eins og síðan ég byrjaði í þessu námi. Ég er búin að hanga svo lengi að ég er viss um að einn bjór dugi til að velta mér á rassgatið, hehe:D Já, það verður sko djammað á fimmtudaginn, svo að allir sem vilja kíkja með mér að fagna próflokum hafið samband.

Jæja, þarf að halda áfram að læra fyrir prófið.
Hasta luego mis guapos:haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 14:20:59 / thea

Hola!

Hey krílin mín, er á lífi og vildi bara kasta kveðju á ykkur öll. Það er akkúrat ekkert að frétta svo að ég ætla ekki að fara að blogga hérna um ekki neitt. Er endalaust að læra eins og venjulega svo að það eru engar fréttir og fer nú að styttast í blessuð prófin, vúpí eða hitt og heldur:D Stefnan er sett á að reyna að gera einhver jólagjafakaup í vikunni svo að kannski fær maður smá jólafíling í leiðinni, annars er þessi snjór að gera góða hluti svo að það hjálpar eitthvað í öllu þessu námsstressi:P
Læt heyra í mér seinna. Vonandi hafið þið það öll gott dúllur.

Kossar og knús

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 23596
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 722 dögum
Verður minns 26 ára
Klukkan